Fá greitt fyrir jól
Tvö hundruð þúsund viðskiptavinir Landsbankans í Bretlandi munu frá inneign sína á Icesave reikningum greidda út fyrir jól samkvæmt áætlun Tryggingasjóðs innistæðueigenda, samkvæmt frétt á vef Telegraph. Þar kemur fram að sparifjáreigendurnir muni fá allar innistæður sínar greiddar út en þær hafa verið frystar frá því 7. október.
Hins vegar liggur ekki ljóst fyrir hvað verður um innistæður þeirra sem eiga fé inni á reikningum Landsbankans og Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings, á Mön og Guernsey. Talið er að þeir sem eiga innistæður inni á reikningum hjá Landsbankanum á Guernsey fái einungis um 30% af innistæðum sínum endurgreiddar.
Í síðustu viku greindi Morgunblaðið frá því að íslenski tryggingasjóður innistæðueigenda þurfi að greiða 2,3 milljarða punda vegna ábyrgðar á innistæðum Icesave í Bretlandi.
Íslendingar eru ábyrgir fyrir því að greiða hverjum og einum innistæðueiganda allt að 20.887 evrur. Í tryggingasjóðnum eru um 19 milljarðar króna. Heildarupphæðin sem þarf að greiða út er um 4,5 milljarðar punda.
Breski tryggingasjóðurinn mun síðan greiða mismuninn að 50 þúsund
pundum á hvern innistæðueiganda og er sú upphæð talin vera um 1,4
milljarðar punda. Það sem þá vantar upp á
er áætlað um 800 milljónir punda og
verður greitt af ríkissjóði Bretlands gegn því að hann eigi síðan kröfu
í þrotabú gamla Landsbankans fyrir þeirri upphæð.




















