Mörg tilboð í þrotabú Sterling
Mörg fjársterk félög lögðu fram tilboð í þrotabú danska lággjaldaflugfélagsins Sterling en tilboðsfrestur rann út á miðnætti. Ekki verður upplýst hverjir tilboðsgjafarnir eru fyrr en búist er við að málið skýrist eftir nokkra daga.
Lögmannastofan Kromann Reumert hefur verið skipuð skiptaráðandi þrotabúsins. Sille Stener, framkvæmdastjóri stofunnar, segir við viðskiptavef Jótlandspóstsins, að mörg tilboð hafi borist. Hugsanlega takist að ganga frá samningnum fyrir vikulokin.
Félagið, sem var í eigu félags í eigu Pálma Haraldssonar, óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í síðustu viku. Var meirihluta 1100 starfsmanna sagt upp störfum á föstudag.
Jótlandspósturinn segir, að lággjaldaflugfélögin Air Berlin, Norwegian og Easyjet séu nefnd sem hugsanlegir kaupendur. Þá er stórt arabískt flugfélag sagt hafa sýnt Sterling áhuga og segir á ferðavefnum Standby.dk að það kunni að vera Qatar Airways eða Emirates.
Alls fá 745 fyrrum starfsmenn Sterling laun sín greidd út tryggingasjóði launa í Danmörku. Um 300 starfsmenn félagsins í Noregi og Svíþjóð þurfa hins vegar að bíða enn um sinn eftir bótum.



















