Viðskipti
| AP
| 5.11.2008
| 8:29
Minni hagnaður BNP rakinn til íslensku bankana og Lehman
Hagnaður franska bankans BNP Paribas dróst saman um ríflega helming á þriðja ársfjórðungi. Bankinn þurfti að afskrifa 1,1 milljarð evra og segir í tilkynningu frá bankanum að skýringin á verri afkomu sé aukinn kostnaður á skuldabréf, fall bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers og íslensku bankanna.
BNP Parisbas, stærsti banki Evrópu, hagnaðist um 901 milljón evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við 2,03 milljarða evra á sama tímabili í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















