Fasteignasala dregst saman um 67,5%

Alls var 312 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í október og nam veltan 8,9 milljörðum króna. Í sama mánuði í fyrra var 960 kaupsamningum þinglýst og veltan var 31,3 milljarðar króna. Þetta þýðir að kaupsamningum hefur fækkað um 67,5% og velta minnkað um 71,5% á milli októbermánaða.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2008 var 312. Heildarvelta nam 8,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 6,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,1 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna.

Veltan minnkar um 20,8% milli mánaða

Þegar október 2008 er borinn saman við september 2008 fækkar kaupsamningum um 13,8% og velta minnkar um 20,8%. Í september 2008 var þinglýst 362 kaupsamningum, velta nam 11,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 31,2 milljónir króna.

Þegar október 2008 er borinn saman við október 2007 fækkar kaupsamningum um 67,5% og velta minnkar um 71,5%. Í október 2007 var þinglýst 960 kaupsamningum, velta nam 31,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 32,6 milljónir króna, að því er fram kemur á vef Fasteignamats ríkisins.

34 kaupsamningar á Akureyri

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í október 2008 var 34. Þar af voru 22 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 713 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21 milljón króna.

Á sama tíma var 38 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 24 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 720 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 7 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 135 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um eignir í sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 369 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,5 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK