Skatturinn rannsakar viðskipti starfsmanna
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Ríkisskattstjóri hefur nú til rannsóknar hugsanleg skattalagabrot sem tengjast m.a. viðskiptum með hlutabréf í einkahlutafélögum starfsmanna. „Þessi mál í heild sinni eru til skoðunar hjá embætti ríkisskattstjóra og verða til meðferðar hjá skattstjórum á næstu mánuðum,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Skattalegt hagræði
Margir starfsmenn bankanna færðu hlutabréf og kauprétt sem þeir áttu í bönkunum í sérstök einkahlutafélög í sinni eigu og var tilgangurinn með slíkri eignafærslu oftast skattalegt hagræði. Hefur þetta og önnur vinnutengd umbun sem starfsmenn þáðu í gegnum einkahlutafélög sín sætt nokkurri gagnrýni. Hlutafélag og einstaklingurinn sjálfur er ekki eitt og hið sama og þóknanir sem starfsmenn bankanna fengu í gegnum hlutafélög sín eru meðal þess sem sætir nú rannsókn skattyfirvalda.Lykilstjórnendur Kaupþings
Rannsókn ríkisskattstjóra beinist að ótilgreindum fjölda starfsmanna bankanna. Fyrir liggur að nokkrir lykilstjórnendur hjá Kaupþingi færðu hlutabréf sín og kauprétt í eigin einkahlutafélög. Má þar nefna Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, en hann átti stóran hlut í bankanum sem hann síðan færði í einkahlutafélag sitt, Ingvar Vilhjálmsson ehf.Kristján Arason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs, átti einnig bréf í gamla Kaupþingi sem hann færði í einkahlutafélagið 7 hægri ehf. Þetta gerði Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, einnig, en ekkert liggur fyrir um ólögmæta háttsemi.
Það giltu almennar reglur um starfsmenn bankanna eins og um aðra. Starfsmenn bankanna gátu því fært hlutabréf af eigin kennitölu yfir í einkahlutafélög í sinni eigu. Allur gangur var á því hvort einkahlutafélögunum fylgdu persónulegar ábyrgðir eða ekki.
„Hagsmunir sem einstaklingar geta haft af því að færa kauprétt og hlutabréf inn í einkahlutafélög eru fyrst og fremst skattalegs eðlis,“ segir sérfræðingur í skattarétti sem hefur aðstoðað við slíkar eignayfirfærslur. „Með færslu í einkahlutafélag geta menn frestað skattgreiðslu, t.d. söluhagnaði, því söluhagnaður af hlutabréfum er ekki skattskyldur í einkahlutafélögunum fyrr en hann er tekinn út í formi arðgreiðslu, en af henni greiðist 10% skattur,“ bætir hann við.
Félag þarf að hafa skilað hagnaði til þess að greiddur sé út arður. Ef það myndaðist söluhagnaður í júlí á þessu ári, svo dæmi sé tekið, þá er gerður ársreikningur fyrir viðkomandi félag og á grundvelli hans greiðir eigandi félagsins arð til sjálfs sín.
Í hnotskurn
» Ef starfsmaður fær afhentan kauprétt í tengslum við vinnuframlag og hann felur í sér rétt til að kaupa hlutabréf undir markaðsvirði þá er mismunur markaðsverðs og kaupverðs skattlagður sem tekjur.» Margir starfsmenn bankanna fengu svokölluð „kúlulán“ til þess að kaupa hlutabréf í bönkunum.
» Kúlulán eru yfirleitt langtímalán þar sem engin afborgun á sér stað fyrr en við lok lánstímans og vextir eru oft greiddir einu sinni á ári.



















