Hlutabréf féllu í verði
Lækkanir einkenna hlutabréfamarkaði þessa dagana. mbl.is
Hlutabréf féll í verði í Japa í morgun. Við opnun markaðar lækkaði Nikkei hlutabréfavísitalan um tæplega sjö prósent. Sú lækkun gekk að hluta til baka þegar líða tók á markaðinn. Lækkunin náði yfir nærri öll félög og fyrirtæki. Hlutabréf í Toyota, einu stærsta fyrirtæki Japans, lækkuðu um tólf prósent.
Lækkunin er talin skýrast öðru fremur af þeirri óvissu sem ríkir á fjármálamörkuðum heimsins. Þá eru miklar hrávörulækkanir undanfarna fjóra mánuði farnar að hafa umtalsverð áhrif á efnahagslíf ýmissa þjóða. Heimsmarakaðsverð á olíu hefur fallið úr 147 dollurum á fatið niður í 58 dollara á tæplega þremur og hálfum mánuði. Þá hefur verð á málmum einnig fallið umtalsvert. Tonnið af stáli hefur lækkað um meira 70 prósent og ál hefur fallið um 40 prósent.



















