Stærstu mistökin að flytja ekki Kaupþing úr landi

Sigurður Einarsson.

Sigurður Einarsson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, segir að stærstu mistökin sem bankinn hafi gert var að flytja ekki höfuðstöðvar hans úr landi. Þetta kom fram í viðtali við Sigurð í Markaðnum á Stöð 2 í dag.

Sigurður segir að þetta hefði átt að gera þegar viðræður voru um kaup á hollenska bankanum NIBC. Þá væri Kaupþing hollenskur banki í dag og hefði ekki farið í þrot.

Sigurður fór í viðtalinu yfir undanfara þess að bankarnir hrundu hver á eftir öðrum á Íslandi. Hann segist hafa beðið ráðherra um að fara ekki þá leið sem farin var með Glitni, það er að ríkið kæmi inn sem 75% hluthafi inn í bankann. Það hefði mjög slæm áhrif út í alþjóðlegt fjármálalíf.  Ráð hans hafi hins vegar ekki fengið neinn hljómgrunn hjá ráðamönnum þjóðarinnar.

Sigurður segist geta fullyrt að þetta hefði ekki farið eins og þetta fór ef Ísland væri með evru og með stuðning frá evrópska seðlabankanum. Íslenska krónan sé aftan úr fornöld og fáránlegt að notast við hana sem gjaldmiðil.

Hann segist taka fulla ábyrgð á falli Kaupþings og taki þetta mjög nærri sér.  

Hefði átt að loka Icesave strax í marsmánuði

Sigurður segir að það sé mjög alvarlegt og að engin svör hafi fengist við því  enn er að í marsmánuði þá hafi það verið ljóst að Icesave-reikningar Landsbankans gátu ekki gengið í því formi sem þeir voru. Landsbankinn gat ekki flutt nægjanlega mikið af eignum frá móðurfélaginu á Íslandi yfir til Bretlands til þess að standa að baki útibúum í Bretlandi þar sem hann átti nægjanlegar eignir til þess að standa við bakið á þeim miklu innlánum sem voru í Bretlandi. Það þýði það að það hefði átt að stöðva að minnsta kosti frekari innlánssöfnun inn á Icesave reikningana strax í marsmánuði.

Það gerist ekki þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið á Íslandi sé með þessa vitneskju og bankamálaráðuneytið á Íslandi.

„Þetta er í marsmánuði. Bankinn fær áfram í sex eða sjö mánuði að auglýsa og safna frekari innlánum sem gera vandann enn illviðráðanlegri. Og ég skil ekki af hverju þetta var ekki stoppað þá af íslenska fjármálaeftirlitinu eða íslenska bankamálaráðherranum. Sem síðar gerir sér sérstaka ferð til Bretlands og hittir fjármálaráherrann hér og ekkert gerist.  Þetta verður ennþá óskiljanlegra í mínum huga þegar haft er í huga hvernig var komið fram við Kaupþing hér í Bretlandi í lok september og byrjun október," sagði Sigurður.

Sigurður segir að afar misvísandi og í sumum tilvikum rangar upplýsingar hafi komið fram hvað varðar lánveitingar til starfsmanna bankans. Ástæðan fyrir því að hann hafi samþykkt að fara í viðtal nú sé sú atlaga sem hafi verið gerð gegn starfsmönnum Kaupþings varðandi kaupréttarsamninga við þá.

Hann segist ekki kannast við að peningar hafi verið fluttir út úr Kaupþingi til útlanda líkt og haldið hefur verið fram í fréttum. Sigurður segir að eign hans í bankanum sé töpuð en hann hafi aldrei selt hlutabréf í Kaupþingi og ekki heldur stofnað einkahlutafélag um þau.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir