Viðskipti
| mbl
| 8.11.2008
| 11:35
Svíar lána væntanlega 500 milljónir evra
Reuters
Sænski Seðlabankinn mun væntanlega lána Íslendingum fimm milljarða sænskra króna, 500 milljónir evra. Er þetta hluti af samkomulagi skandínavísku ríkjanna, samkvæmt frétt á vef Dagens industri. Er það hluti af gjaldeyrisskiptasamningi sem Seðlabanki Íslands gerði við sænska seðlabankann fyrr á árinu.
Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur gerðu tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands í maí sl.
Hver samningur um sig veitir aðgang að allt að 500
milljónum evra gegn íslenskum krónum.
Að sögn Barbro Wickman-Parak, sem fer með lánamál Seðlabanka Svíþjóðar segir að bankinn muni bíða eftir niðurstöðu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins áður en lokaákvörðun um lán til handa Íslendingum er tekið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















