Viðskipti
| mbl
| 11.11.2008
| 7:26
| Uppfært
7:46
Hráolíuverð ekki lægra í 18 mánuði
Verð á hráolíu hefur ekki verið lægra í átján mánuði en í morgun lækkaði verð á tunnunni um 1,84 dali í 60,57 dali í viðskiptum í Asíu. Í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í nótt fór tunnan niður í 60,29 dali.
Lokaverð á hráolíu var 60,77 dalir tunna þann 6. nóvember sl og hefur ekki verið lægra síðan í mars á síðasta ári. Hefur hráolíuverð lækkað um 59% frá því það fór hæst í rúma 147 dali um miðjan júlí sl.
Verð á hlutabréfum og olíu hækkaði almennt í gær, daginn eftir að kínversk stjórnvöld kynntu áætlun um að setja 586 milljarða dala í framkvæmdir í landinu. Er það gert til þess að örva efnahagslífið á ný.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í desember um 1,88 dali tunnan og er 57,20 dalir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















