Írar tapa stórt á fjárfestingu í íslensku bönkunum
Einn stærsti íbúðalánveitandi Írlands, Irish Life & Permanent PLC (IL&p) dró verulega úr væntingum með afkomuspá sinni í dag aðallega vegna tapaðra fjárfestinga í íslensku bönkunum.
Í yfirlýsingu frá IL&P segir að bankinn muni ekki greiða neinn arð til hluthafa og býst við að skila 30% minni hagnaði í ár heldur en í fyrra. Í ágúst hafði bankinn spáð 10% minni hagnaði.
Sjóðurinn tilkynnti að hann myndi afskrifa 92 milljónir evra, jafnvirði 15,7 milljarða króna, vegna fjárfestinga í Landsbankanum, Kaupþingi og Glitni.
Bankinn tilkynnti hins vegar um leið að útlánasafn hans væri í betra ásigkomulagi en útlánasafn helstu keppinautanna, Allied Irish Bank, Bank of Ireland og Anglo-Irish Bank. Aðallega vegna þess að bankinn tryggði útlánin með veði í fasteignum einstaklinga, meðan stór útlán hinna til fasteignaþróunarfélaga og fyrirtækja væru misvel tryggð.
Bankinn hefur hins vegar ekki farið varhluta af gríðarlegri niðursveiflu á írskum fasteignamarkaði. Fasteignaverð í landinu hefur fallið um 15-35% frá árinu 2006, þegar verð stóðu sem hæst. Þetta hefur leitt til þess að tugir þúsunda fasteignareigenda skulda meira en þeir eiga.



















