Viðskipti
| Morgunblaðið
| 13.11.2008
| 6:25
Seðlabanki frestar veðkalli
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
Sparisjóðabanki Íslands fékk í gær frest til 10. desember til að reiða fram auknar tryggingar vegna veðlána í Seðlabanka Íslands. Agnar segir að erlendir kröfuhafar hafi gefið jafnlangan frest.
Icebank hefur fengið lán hjá Seðlabankanum og lagt fram verðbréf útgefin af Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum sem veð. Þegar bankarnir féllu fór Seðlabankinn fram á viðbótartryggingar. Í tilviki Sparisjóðabankans þarf að leggja fram 60 milljarða króna.
Önnur fjármálafyrirtæki þurftu líka að leggja fram tryggingar. Komið hefur fram að Saga Capital, SPRON, Askar Capital og Straumur hafa þegar lagt fram tryggingar eða samið um útfærslu sem felur í sér tryggingarígildi eins og það er orðað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















