Viðskipti
| mbl
| 13.11.2008
| 21:30
Skilanefnd Glitnis fundaði með stærstu lánardrottnum
Skilanefnd gamla Glitnis átti í dag fund með fulltrúum stærstu lánadrottna bankans. Í tilkynningu segir, að aðilum hafi borið saman um að fundurinn hefði verið upplýsandi og gagnlegur og umræður og tillögur uppbyggilegar.
Ennfremur hafi umræður leitt í ljós að hlutaðeigandi aðilar líta svo á að langtímahagsmunir þeirra fari saman. Skilanefndin segist lýsa ánægju sinni með útkomu fundarins.
Búist er við að annar fundur verði boðaður innan mánaðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















