Breytingar á eignarhaldi Arev
Fjórir af eigendum fjárfestingafélagsins Arev hafa sagt skilið við félagið en Jón Scheving Thorsteinsson er enn aðaleigandi félagsins. Auk Jóns á Elín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Arev verðbréfa hf. hlut í félaginu. Arev á meðal annars hlut í breskum verslunarfyrirtækjum en fjárfestingar Arev eru einkum á Íslandi og Bretlandi en einnig í Lettlandi.
Fjallað er um fjárfestingar Arev í breskum fjölmiðlum í dag og að Bretarnir séu farnir út úr félaginu. Jón segir í samtali við mbl.is að þetta hafi átt sér nokkurn aðdraganda en hann sé áfram aðaleigandi félagsins. Í kjölfar breytinga á eignarhaldi hefur Jón tekið sæti í stjórn skókeðjunnar Jones Bootmaker sem Arev á hlut í.
Auk þess á Arev hlut í fleiri verslunarfyrirtækjum í Bretlandi, svo sem Cruise, Duchamp, Mountain Warehouse og Blooming Marvellous.
Í frétt á vefnum Drapers kemur fram að Arev hafi einkum fjárfest í gegnum fjárfestingasjóðoinn Kcaj. Að sögn Jón er Milestone meirihlutaeigandi Kcaj og er sjóðurinn ekki lengur í umsjón Arev.
Jón segir að Milestone sé að vinna að nýrri skipan mála hvað varðar rekstur sjóðsins og stjórnarsetu í breskum félögum. „Grunnstarfsemi í félögunum í Bretlandi verður með óbreyttu sniði að öðru leyti en því að breyttar markaðsaðstæður kalla á minni umsvif og mannafla.
Starfsemi Arev á Íslandi er óbreytt en þar stýrir Arev verðbréfafyrirtæki sjóðunum Arev Capital og Arev N1 auk þess sem í undirbúningi er stofnun nýs framtaksfjármögnunarsjóðs á sviði neytendavöru," segir Jón.



















