Viðskipti
| mbl
| 14.11.2008
| 17:39
| Uppfært
21:32
FME birtir bráðabirgðatölur um efnahag bankanna
mbl.is/Eyþór
Fjármálaeftirlitið hefur birt stofnefnahagsreikning fyrir Nýja Glitni banka, Nýja Kaupþing banka og NBI. Um er að ræða bráðabirgðatölur sem háðar eru endurmati sem nú er hafið.
Samkvæmt bráðabirgðatölunum eru eignir NBI, nýja Landsbankans, rúmar 1.300 milljarðar króna en skuldir 1.100 milljarðar, eignir Nýja Glitnis eru tæpir 886 milljarðar og skuldir 776 milljarðar, og eignir Nýja Kaupþings tæpir 700 milljarðar og skuldir 625 milljarðar.
Niðurstöður endurmatsins eiga að liggja fyrir innan 90 daga frá því að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins lá fyrir um uppskiptingu gömlu bankanna í október sl.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















