Viðskipti
| mbl
| 14.11.2008
| 11:09
Vísitala íbúðaverðs lækkar um 0,2% milli mánaða
mbl.is
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,7 stig í október 2008 og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 0,6% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 2,4%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvember 2008 verður gefin út
þriðjudaginn 16. desember 2008.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, samkvæmt vef Fasteignamats ríkisins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















