Gefast upp á að selja Sterling
Flugvél Sterling á Reykjavíkurflugvelli á síðasta ári. mbl.is/Júlíus
Skiptastjórar þrotabús danska flugfélagsins Sterling hafa gefist upp við að reyna að selja rekstur félagsins en félag, sem hafði áhuga á slíkum kaupum, hætti við eftir að verkalýðsfélag flugmanna og flugfreyja félagsins sleit viðræðum um endurskoðun á kjarasamningum.
Danska útvarpið hefur eftir Lisu Bo Larsen, skiptastjóra, að lítið hafi vantað upp á að samningar um söluna næðust og vonir stóðu til að hægt yrði að skrifa undir samkomulag í dag. Það hefði þýtt að flugvélar Sterling hefðu getað farið aftur á loft um helgina.
Danskir fjölmiðlar segja, að danskur fjárfestingarsjóður hafi haft áhuga á að kaupa þrotabúið og þá hefðu um 430 starfsmenn Sterling fengið vinnu. Sjóðurinn setti hins vegar það skilyrði, að gerðir yrði nýir samningar um laun starfsmannanna.
Lisa Bo Larsen segir, að nú verði reynt að selja tiltekna starfsemi út úr þrotabúinu.
Sterling var í eigu félags Pálma Haraldssonar þegar það varð glaldþrota.



















