Viðskipti
| mbl
| 18.11.2008
| 15:16
Styttist í endurgreiðslu í Þýskalandi
Það styttist í að þýskir sparifjáreigendur sem áttu innistæður á reikningum Kaupþings fái greitt til baka. Þetta er haft eftir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í þýska dagblaðinu Handelsblatt í dag. Alls áttu um þrjátíu þúsund Þjóðverjar innistæður á reikningum Kaupþings og hafa þær verið frystar frá 9. október.
Segir Geir í viðtalinu að Ísland verði komið á fætur á ný árið 2010. „Með aðstoð frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum munum við komast hratt í gegnum þetta erfiða tímabil."
Segist Geir þess fullviss að afgreiðslan taki ekki langan tíma hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum en alls er þess vænst að Ísland fái rúmar tvær milljónir Bandaríkjadala að láni frá sjóðnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















