Útlánin nema um 360 milljörðum króna
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Útlánasafn útibús Landsbankans í London, Heritable Bank, nam um 1,2 milljörðum punda (um 240 milljörðum króna á núvirði) um það leyti sem eignir bankans voru frystar af þarlendum stjórnvöldum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins nam útlánasafn útibúsins í Hollandi á sama tíma um 700 milljónum evra (um 120 milljörðum króna á núvirði).
Fram hefur komið að innstæður á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi námu um 4,2-4,5 milljörðum punda. Hins vegar mun ekki öll sú upphæð falla á tryggingasjóð, og þar með íslensk stjórnvöld, heldur um 2,1-2,2 milljarðar punda. Sambærileg fjárhæð í tilviki hollenskra innstæðueigenda nemur um einum milljarði evra.
Ljóst má því vera að útlán útibúanna munu ekki duga fyrir þeim ábyrgðum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist í. Hins vegar verður að hafa í huga að fleiri eignir en útlán voru frystar. Þar á meðal voru hlutabréfa- og skuldabréfasöfn, afleiðusamningar og önnur verðbréf.
Í síðasta árshlutauppgjöri Landsbankans, sem kom út í sumar, segir að heildareignir bankans á Bretlandseyjum nemi 5,7 milljörðum punda og 3,1 milljarði í Lúxemborg, en ekki er gefið upp hverjar eignir bankans eru í Hollandi. Stór hluti þessara eigna var í höndum móðurfélagsins, en ekki í útibúunum sjálfum, en þær munu þó að stórum hluta hafa verið skildar eftir í þrotabúi gamla bankans. Alls er hins vegar óvíst hvaða verð fengist fyrir eignirnar væru þær seldar nú.



















