Viðskipti
| mbl
| 19.11.2008
| 7:28
| Uppfært
13:50
Opnast fyrir sölu á Sterling að nýju
Flugvél Sterling á Kastrupflugvelli. mbl.is/GSH
Talsverðar sviptingar hafa verið í kringum þrotabú danska flugfélagsins Sterling. Í gær sögðu skiptastjórar, að gefist hefði verið upp á að selja rekstur félagsins þar sem verkalýðsfélag flugmanna og flugfreyja vildi ekki gera nýjan kjarasamning við hugsanlegan kaupanda að rekstrinum.
Í nótt náðist hins vegar samkomulag við starfsmennina og nú er verið að kanna hvort kaupandinn hugsanlegi, danskur fjárfestingarsjóður, hafi enn áhuga.
Um 430 fyrrverandi starfsmenn Sterling gætu fengið vinnu sína að nýju náist samkomulag um sölu á rekstri Sterling.
Gert er ráð fyrir að málið skýrist á morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















