Auknar fjárfestingar EBRD
Evrópski þróunarbankinn, EBRD, áætlar að auka fjárfestingar umtalsvert á næsta ári í Mið- og Austur-Evrópu vegna fjármálakreppunnar. Forstjóri EBRD, Thomas Mirow, greindi frá þessu í bréfi til hluthafa bankans í gær, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.
Áætlanir EBRD gera ráð fyrir að bankinn muni fjárfesta fyrir allt að sjö milljarða evra á árinu 2009, sem yrðu þá mestu fjárfestingar bankans á einu ári frá stofnun hans. Segir í tilkynningunni að til þessa hafi fjárfestingar EBRD að jafnaði laðað að aðrar fjárfestingar fyrir um tvöfalt hærri fjárhæð en bankinn sjálfur hefur lagt fram. Því megi ætla að heildarfjárfestingar í þeim verkefnum sem EBRD muni fjárfesta í muni nema um 20 milljörðum evra á árinu 2009.
Baldur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjórni EBRD, segir að bankinn hafi fundið fyrir vaxandi eftirspurn eftir fjármögnun á starfssvæði bankans, þar sem þrengst hafi um fjármögnun á almennum markaði, en þátttaka EBRD í verkefnum hafi auðveldað aðgengi fyrirtækja að viðbótatrfjármagni frá öðrum fjármálastofnunum. „Það hefur einnig verið eftirspurn frá íslenskum aðilum, enda niðursveiflan á starfsvæði bankans minni en á vesturlöndum,“ segir Baldur. „Aðgerðir bankans eru í framhaldi af fundi G20 landanna fyrir stuttu þar sem hvatt var til að alþjóðlegar fjármálastofnanir beittu sínum kröftum til að vinna gegn þeirri kreppu sem nú ríkir. Aukin alþjóðavæðing á umliðnum árum, kemur einnig glöggt fram í þeirri fjármálakreppu sem ríkt hefur, sem aftur gerir samhæfðar alþjóðlegar aðgerðir mikilvægari en ella. Aðgerðir EBRD til að auka fjárfestingar á þessum tímum er liður í þessu.“



















