Fitch: Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs óbreyttar
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fitch Ratings. Þar er fjallað um lánafyrirgreiðslu Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), sem stjórn sjóðsins samþykkti í gær.
Þar segir m.a. að stöðugleiki í gengismálum sé lykilatriði í aðgerðaáætlun IMF og stjórnvalda. Það sé mikilvægt að íslensk stjórnvöld grípi til skjótt til aðgerða til að koma á stöðugleikanum og styrkja stöðu krónunnar. Lagður verði grunnur að efnahagsbata og að unnið verði að því að færa fjármálkerfið í eðlilegt horf.
Stjórn IMF samþykkti samhljóða á fundi í
gærkvöldi að lána Íslendingum 2,1 milljarð Bandaríkjadala til tveggja ára til þess að koma á
efnahagsstöðugleika hérlendis. Íslendingar fá að auki allt að 3
milljörðum dala, um 440 milljarða kr., að láni annars staðar frá skv.
áætlun sem IMF samþykkti.



















