Huldumenn að baki Stím ehf.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Glitnir var sjálfur seljandi
Sama dag og Stím keypti 4,11 prósenta hlut í FL Group seldi Glitnir og Glitnir Hedge (vogunarsjóður Glitnis) samtals 3,82 prósenta hlut sinn í félaginu. Glitnir seldi einnig 3,8 prósent í sjálfum sér sama dag og Stím keypti 4,30 prósent í bankanum á 16,4 milljarða króna. Því virðist langstærsti seljandi bréfanna sem Stím keypti hafa verið Glitnir sjálfur.Stím seldi hluta bréfa sinna í FL Group (1,31 prósent) í desember í fyrra þegar nýtt hlutafé var gefið út. Gengi bréfa var þá 14,7 og virði hins selda hlutar hafði rýrnað um 900 milljónir króna frá kaupdeginum mánuði fyrr. Samt keypti Stím meira í FL Group í janúar (0,36 prósent til viðbótar) þegar gengi félagsins var enn að falla. Í lok þess mánaðar var eignarhlutur Stím í FL Group 3,16 prósent. Í febrúar fór gengi FL Group niður fyrir 10 og heildarvirði eigna Stím í félaginu undir þrjá milljarða króna.
Stím hóf síðan að selja bréf sín í FL Group um miðjan mars og fram í byrjun maí. Gengi félagsins féll á þeim tíma. FL Group var afskráð úr kauphöllinni skömmu síðar á genginu 6,69. Stím átti þá 89 þúsund hluti í félaginu. Stím virðist hafa selt sig alveg út úr Glitni seinni hluta marsmánaðar eða í byrjun apríl þegar gengi bréfa í Glitni var í kringum 17,5 og markaðsvirði hlutarins um 11,2 milljarðar króna. Í byrjun maí var Stím síðan aftur skráð fyrir 0,87 prósenta hlut, en þeir hlutir voru seldir aftur síðar í sama mánuði.
Hver á Stím?
Þegar Morgunblaðið náði tali af Jakobi Valgeiri, skráðum stjórnarformanni Stím, fyrir nokkru sagðist hann kannast við Stím en ekkert vilja segja um málið. „Ég er búinn að taka ákvörðun um að tjá mig ekkert um þetta félag. Ég nenni ekkert að segja já eða nei. Ég sé engan hag í því að vera að tjá mig um þetta félag.“ Stím var, og er, skráð til heimilis á sama heimilisfang og Saga Capital á Akureyri. Hjá Sögu fengust heldur engar upplýsingar um hverjir stæðu að félaginu.Lánaði Glitnir Stím?
Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, var spurður hvort rétt væri að Glitnir hefði lánað Stím fyrir umræddum viðskiptum í Glitni og FL Group í Silfri Egils þann 21. september síðastliðinn. Þar svaraði Lárus því til að Stím væri „eflaust einn af okkar viðskiptavinum og þau viðskipti eru bara eins og með öll önnur viðskipti. Það hafa verið margir aðilar sem hafa verið að koma inn í fjárfestingar í bönkunum á mismunandi tímum.“ Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var gjalddagi lánsins frá Glitni til Stím um miðjan síðasta mánuð.Þegar fyrirspurn um hvort Glitnir hefði lánað Stím fyrir viðskiptunum var beint til nýja Glitnis fengust þau svör en engar upplýsingar um það væri að fá þar. Fyrirspurnin ætti frekar heima hjá skilanefnd gamla Glitnis. Skilanefndin kannaðist heldur ekki við málið.



















