Viðskipti
| mbl
| 20.11.2008
| 14:04
| Uppfært
14:43
Vaxtakjör liggja ekki fyrir
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að vaxtakjör á lánum, sem ýmis lönd munu veita Íslandi, liggja ekki fyrir. Geir sagðist gera ráð fyrir því að um yrði að ræða hefðbundin kjör og vaxtabyrðin færi eftir því hvað mikið yrði dregið á lánin.
„Við höfum hugsað okkur þetta sem sérstakan varnarvegg, sem hugsanlega þarf ekki svo mikið að nota s eftir því sem gengur með gjaldeyrisviðskiptin," sagði Geir.
Verið er að ræða um þingsályktunartillögu forsætisráðherra að ríkisstjórninni verði falið að leiða til lykta áform um fjárhagslega fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















