Rúmlega 200 ný störf
Atvinnuleysi hefur aukist en vonir standa til að stuðningur við nýsköpun geti vegið þar á móti. Reuters
„Rúmlega 200 störf skapast með því að treysta stoðir nýsköpunar, meðal annars með samkomulagi ríkisstjórnarinnar um aðkomu atvinnuleysistryggingasjóðs.“ Þetta segir í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. Sjóðurinn greiðir 90% af bótum hvers manns sem fyrirtæki ræður af atvinnuleysisskrá. Ekkert takmark sé á fjölda starfsmanna.
Nú þegar hafa um 50 hátækni- og sprotafyrirtæki gert tilboð um 230 nýjar stöður, samkvæmt tilkynningunni.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði frá samkomulgi ríkisstjórnarinnar á rúmlega þúsund manna fundi hátækni- og nýsköpunarfyrirtækja.
„Undirtektirnar eru gífurlega góðar og það er full ástæða til að hvetja sem flest fyrirtæki til að nýta sér þessa heimild,“ segir Davíð Lúðvíksson forstöðumaður nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins. Hann segir fyrirtækin sjálf hafa sýnt málinu mikinn áhuga og þau bíði nú nánari útfærslu á fyrirkomulaginu frá stjórnvöldum. Fyrirspurnum hafi engu að síður rignt inn til þessara fyrirtækja og mörg þeirra séu tilbúin að hefja ráðningarferlið strax.
Á fundinum „Núna er tækifærið“ kynntu nýsköpunarfyrirtæki þróunarsögu sína og lögðu fram tilboð um að fjölga störfum í starfsemi sinni gegn því að stjórnvöld kæmu til móts við þau með markvissum aðgerðum. Auk aðkomu atvinnuleysistryggingasjóðs nefndu fyrirtækin skuldbindingar stjórnvalda varðandi stofnun Frumtaks, eflingu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Tækniþróunarsjóðs, að nýju lífi verði blásið í áhættufjármagns- og hlutabréfamarkaðinn og að tekið verði upp endurgreiðslukerfi rannsókna- og þróunarkostnaðar.



















