Viðskipti
| Morgunblaðið
| 22.11.2008
| 5:30
| Uppfært
8:15
Ari verður yfir fjölmiðlum
„Við bíðum eftir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins um samruna Árvakurs og Fréttablaðsins,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort afstaða eigenda 365 miðla sé óbreytt eftir breytingar á eignarhaldi félagsins.
„Það er bara tvennt sem getur komið í veg fyrir þennan samruna. Neikvæð afstaða Samkeppniseftirlits eða neikvæð afstaða hluthafafundar Árvakurs. Þetta er ekki í okkar höndum,“ segir Ari.
Með kaupum Nýrrar sýnar ehf., sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, á fjölmiðlahluta 365 hf., 365 miðlum, verða litlar breytingar á högum Ara. Hann verður stjórnarformaður Íslenskrar afþreyingar í nýrri stjórn félagsins, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær, og hann verður jafnframt forstjóri 365 miðla.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















