Milestone lagði til eignir
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Sjóvá átti fjárfestingareignir að andvirði 49 milljarðar króna samkvæmt ársreikningi félagsins 2007, sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þessar eignir eru samkvæmt upplýsingum Sjóvár erlendar fasteignir sem Milestone, eigandi Sjóvár, hefur að hluta lagt inn í Sjóvá til að jafna út viðskiptaskuld.
Aðrar eignir sem heyra undir þennan lið hefur Sjóvá keypt af Askar Capital, sem er umsjónaraðili fasteigna Sjóvár. Milestone hefur síðan séð um þessar fjárfestingar í eignasafni Sjóvár.
Milestone er kjölfestufjárfestir í Askar Capital og eigandi Sjóvár.
Skuldir í erlendri mynt
Vaxtaberandi skuldir Sjóvár voru rúmir 40 milljarðar króna um síðustu áramót samkvæmt ársreikningnum. Mikill meirihluti þeirra skulda var í erlendri mynt. Þar sem gengisvísitala íslensku krónunnar hefur tvöfaldast það sem af er þessu ári hefur fjármagnskostnaður vegna erlendra skuldra Sjóvár hækkað mikið.Stærsti einstaki eignarliðurinn í ársreikningi Sjóvár kallast „Investment properties“, eða fjárfestingareignir, og er bókfært virði hans rúmir 49 milljarðar króna. Liðurinn hefur vaxið um 19 milljarða frá því í árslok 2006 þegar þessar fjárfestingareignir námu 30 milljörðum króna.
Þessi eignarliður var því hærri en vaxtaberandi skuldir um síðustu áramót. Samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá er að langmestu leyti um að ræða fasteignir í Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi.
Tilheyra dótturfélagi
Fjárfestingareignirnar og vaxtaberandi skuldirnar tilheyra dótturfélagi Sjóvár sem heitir SJ fasteignir. Þar sem SJ fasteignir eru dótturfélag Sjóvár færast eignir og skuldir fyrirtækisins inn á samstæðureikning Sjóvár. Samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá er hrein eign félagsins, eignir að frádregnum skuldum, í SJ fasteignum bókfærð á um fimm milljarða króna í níu mánaða uppgjöri Sjóvár.Eigið fé jákvætt
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, segir að þær erlendu fasteignir sem félagið á hafi hækkað til móts við skuldirnar og því sé eigið fé Sjóvár jákvætt þó að skuldir hækki.„Eignirnar eru líka í erlendum gjaldmiðlum og hækka því eins og lánin. Þær eru með gott tekjuflæði á bak við sig. En áhætta okkar vegna þessa liðar nemur einungis eigin fé og það eru ekki nema um fimm milljarðar króna.“ Þór segir að miðað við níu mánaða uppgjör ársins í ár, sem sé þó með varúðarniðurfærslum á eignum, sé eiginfjárstaða félagsins góð. „Við teljum okkur eiga ágætis eignir á móti tjónaskuld félagsins. Við erum með góðan undirliggjandi vátryggingarekstur sem er með gott jafnvægi milli tjóna og iðgjalda. Það á að vera tryggt að hér séu eignir fyrir tjónaskuld okkar.“
Bótasjóður Sjóvár var samkvæmt ársreikningnum rúmir 23 milljarðar króna um áramót. Hann samanstendur af tjónaskuld félagsins og fyrirframgreiddum iðgjöldum. Samkvæmt lögum er vátryggingafélagi heimilt að nota allt að 40 prósent af tjónaskuld í fasteignir.
Skráðu félögin færð
Sjóvá átti um síðustu áramót um helmingshlut í tveimur fjárfestingarfélögum sem heita Þáttur ehf. og Máttur ehf. Þáttur var eignarhaldsfélag um 5,59 prósenta hlut í Glitni banka áður en hann féll og Máttur átti í ýmsum skráðum og óskráðum innlendum félögum. Þór segir að þessar eignir hafi verið færðar yfir til Milestone á þessu ári og því hafi Sjóvá ekki tekið á sig áfall vegna þeirra þegar bankarnir hrundu.Í hnotskurn
» Eigið fé Sjóvár var 10 milljarðar króna um síðustu áramót.» Sjóvá skuldaði 40 milljarða króna vegna lánveitinga á þeim tíma. Þorri skuldanna var í erlendum gjaldmiðlum.
» Stærstu einstöku eignir Sjóvár voru erlendar fasteignir sem bókfærðar voru að virði 49 milljarðar króna. Þær eru meðal annars í Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu.



















