42 milljarðar kr. fyrir TM

Kaldbakur hefur boðið í TM.
Kaldbakur hefur boðið í TM. mbl.is/Kristinn

Kaldbakur, fjárfestingafélag Samherjabræðra, hefur boðið 42 milljarða króna í Tryggingamiðstöðina að því er greint var frá í fréttatíma Ríkissjónvarpsins. Einnig á að hafa borist tilboð frá Guðbjörgu Matthíasdóttur, einum af fyrrum eigendum TM og fleirum, upp á 30 milljarða króna.
Hafa talsmenn Stoða staðfest að tvö tilboð hafi borist í tryggingafélagið en vilja ekki greina frá um hvaða upphæðir sé að ræða. TM er eitt verðmætasta fyrirtækið í eignasafna Stoða og hefur verið mikill áhugi á fyrirtækinu. Tilboðin eru nú í skoðun og verður því tilboði sem er hærra  tekið.
 Áhöld eru hins vegar að sögn heimildamanna RÚV um það hvort að fyrirtækið sé 42 milljarða kr. virði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK