Glitnir fær greiðslustöðvun

mbl.is/Frikki

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Glitni banka í dag heimild til greiðslustöðvunar. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Fyrr í dag fékk Kaupþing banki greiðslustöðvun. 

Fram kemur í tilkynningu frá skilanefndinni, að greiðslustöðvunin veiti bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Meðan á greiðslustöðvun stendur muni bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt sé til að viðhalda verðmæti eigna bankans.
 
Greiðslustöðvunin muni einnig veita Glitni svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember.
 
Steinunn Guðbjartsdóttir, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hún mun starfa með skilanefnd bankans, en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hennar eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.

Greiðslustöðvunin er veitt til kl. 13:30 föstudaginn 13. febrúar 2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun er skylt að boða fund með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok þess tíma.
 
Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.
 
Greiðslustöðvunin nær ekki til Nýja Glitnis banka hf., en hann tók við starfsemi Glitnis á Íslandi, 15. október sl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK