Viðskipti
| mbl
| 24.11.2008
| 9:37
Lánuðu háar fjárhæðir til skútu- og fasteignakaupa
Breski bankinn Singer & Friedlander, sem er í eigu Kaupþings banka, lánaði breskum viðskiptavinum sínum um 310 milljónir punda, 65,4 milljarða króna, til kaupa á skútum og þotum. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg fréttastofunnar frá því á föstudag. Segir í fréttinni að um sérstaka lánabók upp á 1,29 milljarða punda hafi verið að ræða og voru lántakendurnir um 400. Af lánunum hafi 219 milljónir punda verið nýttar til kaupa á skútum og 90 milljónir punda til kaupa á þotum. Um 425 milljónir punda hafi verið lánað til fasteignakaupa. Kemur þetta fram í skýrslu frá endurskoðunarfyrirtækinu Ernst & Young.
Meðal þeirra sem hafi fengið lán hjá bankanum séu Robert Tchenguiz og bræðurnir Nick og Christian Candy, en þeir séu ekki nefndir í skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















