Viðskipti
| mbl
| 25.11.2008
| 8:54
| Uppfært
9:16
Hætta við yfirtöku á Rio Tinto
BHP Biliton, stærsta námufélag heims, tilkynnti í morgun að hætt hefði verið við áform um óvinveitta yfirtöku á námufélaginu Rio Tinto vegna óhagstæðra markaðsaðstæðna. Rio Tinto er móðurfélag Íslenska álfélagsins, sem rekur álverið í Straumsvík.
Rio Tinto hafnaði á sínum tíma tilboði Biliton og sagði það of lágt en það var áður en fjármálakreppan skall á af fullum þunga. Marius Kloppers, forstjóri Biliton, sagði í morgun að tilboðið hefði verið dregið til baka.
Gengi hlutabréfa Rio Tinto lækkaði um 38% í kauphöllinni í Lundúnum við þessar fréttir. Gengi bréfa Biliton hækkaði hins vegar um 16,5%
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















