Tengd lán jukust um 169 milljarða
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Lán Kaupþings til tengdra aðila jukust um rúma 100 milljarða króna á þessum tíma. Bankinn lánaði einnig mest allra til slíkra, eða 146 milljarða króna. Inni í þeirri tölu eru lánveitingar til Exista og Eglu, tveggja stærstu hluthafanna í bankanum áður en hann féll. Samkvæmt árshlutareikningi Kaupþings fyrir fyrstu sex mánuði ársins í ár námu lán til stjórnarmanna, stjórnenda og fjölskyldna þeirra um 36,8 milljörðum.
Ekki veitt lán til bréfakaupa
Lánveitingar Landsbanka til tengdra aðila fóru úr tæpum 32 milljörðum króna í árslok 2005 í rúma 64 milljarða króna í júnílok. Þar var starfsmönnum þó ekki veitt lán fyrir hlutabréfakaupum sem hluti af starfskjörum líkt og tíðkaðist bæði hjá Kaupþingi og Glitni. Á árinu 2007 jukust þau um tæp 55 prósent í samtals um 63 milljarða króna. Í ársreikningi bankans er þessi mikla hækkun meðal annars skýrð með því að rúmir 37 milljarðar króna hefðu á því ári verið lánaðir til tengdra aðila vegna kaupanna á Stork Food Systems í Hollandi.Tengdar lánveitingar Glitnis hækkuðu um 35 milljarða króna á þessu tveimur og hálfa ári og stóðu samtals í 74 milljörðum króna í júnílok 2008. Þau jukust um 28 prósent á fyrstu mánuðum ársins 2008 úr tæpum 58 milljörðum króna. Aukning skýrist þó fyrst og fremst af því að Þorsteinn Már Baldvinsson settist í stjórn bankans og lán fyrirtækja honum tengd töldust þar með lánveitingar til tengdra aðila. Þorsteinn á meðal annars í Samherja.



















