Viðskipti
| Morgunblaðið
| 27.11.2008
| 5:30
| Uppfært
8:07
Eign Samsonar skráð á Kýpur
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Héldu fund fyrir kröfuhafa
Samson kynnti stöðu eigna og skulda félagsins fyrir kröfuhöfum á fundi hinn 23. október síðastliðinn. Morgunblaðið hefur þá kynningu undir höndum. Þar kemur fram að verðmætasta eign félagsins eftir fall Landsbankans er 70 prósenta eignarhlutur í félagi sem heitir Novator Properties og er skráð á Kýpur. Samson metur hlut sinn í félaginu á 14,3 milljarða króna. Auk þess á Samson háar útistandandi kröfur sem samtals nema um 62 milljörðum króna. Mikil óvissa ríkir um innheimtu hluta þeirra. Hæsta krafan er á Jointrace Ltd, móðurfélag Xl Leisure Group, upp á 37 milljarða króna. XL Leisure Group fór í þrot fyrr á árinu.Í kjölfar kynningarinnar sóttist Samson eftir áframhaldandi greiðslustöðvun en Commerzbank, einn stærsti kröfuhafinn í bú félagsins, mótmælti þeirri ósk. Samson var síðan tekið til gjaldþrotaskipta hinn 12. nóvember.
Skulda afrískum banka
Samson skuldar 87,7 milljarða króna vegna lána hjá innlendum og erlendum bönkum. Stærstu kröfuhafarnir eru Landsbankinn, Commerzbank og hinn suðurafríski Standard Bank. Auk þess er virði skuldabréfa sem útgefin voru af Samson sagt vera 24,3 milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er slík bréf að finna í ýmsum lífeyris- og peningamarkaðssjóðum. 8
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















