Lánardrottnar Singer & Friedlander hittast
Boðað hefur verið til fundar lánardrottna Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings í Lundúnum í dag, þar sem fjalla á um leiðir til að fá lánin endurgreidd. Fundurinn verður haldinn í Café Royal á Piccadilly.
Breska blaðið The Guardian segir frá þessu í dag. Blaðið segir, að fastir viðskiptavinir Café Royal eigi margir snekkjur og einkaflugvélar og slík tæki verði væntanlega til umræðu á fundinum þó ekki verði rætt um skemmtisiglingar og flug til fjarlægra staða heldur um lánin, sem veitt voru til að kaupa þessi leikföng.
Í ljós hefur nefnilega komið, að fjórðungur allra lána, um 300 milljónir punda, sem Singer & Friedlander veitti einkaaðilum, var vegna kaupa á einkaþotum og snekkjum.
Alls fengu um 400 viðskiptavinir einkabankaþjónustu Singer & Friedlander 1,2 milljarða króna að láni. Stærstur hlutinn, eða 33%, var vegna fasteignakaupa á Bretlandi.
Bankinn veitti fyrirtækjum einnig 824 milljónir punda að láni og þar af er um fjórðungur í vanskilum.
Breska fjármálaeftirlitið setti Singer & Friedlander í greiðslustöðvun 8. október.




















