Vilja olíuverðið í 75 dali á fatið
Markmið samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, er að heimsmarkaðsverð á olíu fari upp í 75 dali á fatið og segir aðalritari samtakanna að næsta víst sé að ákveðið verði að draga úr framleiðslu á fundi OPEC í Alsír seinna í þessum mánuði.
Abdalla el-Badri, aðalritari OPEC, segist jafnframt viss um að önnur olíuríki eins og Rússland muni draga úr framleiðslu til að koma í veg fyrir frekari lækkun á olíuverði. Á fundi OPEC á laugardag var ákveðið að draga ekki úr framleiðslu á olíu fyrr en áhrif niðurskurðar frá í október væru ljós.
Olíumálaráðherra Sádí-Arabíu, Ali al-Naimi, segir samtökin vilja halda olíuverði á milli 70 og 90 dali á fatið næstu áratugi. Noregur mun ekki taka þátt í niðurskurði OPEC að þessu sinni, að því er kemur fram í frétt Bloomberg.



















