Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs lækkuð
Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir erlendar og innlendar skuldbindingar í Baa1 úr A1. Fjárhagslegur styrkur ríkissjóðs hefur skaðast verulega að mati Moody's í kjölfar banka- og gjaldeyriskreppunnar.
Haft er eftir Kenneth Orchard, yfirgreinanda Moody's á greiðsluhæfi ríkja, að endurskipulagning bankakerfisins og það verkefni að koma krónunni í jafnvægi á ný muni neyða ríkisstjórnina til að skuldsetja ríkissjóð verulega. Það muni hafa mikil áhrif á fjárlög í mörg ár á eftir.
Orchard segir að efnahagsástandið á Íslandi muni verða erfitt næstu tvö til þrjú árin. Fall bankanna og krónunnar í september og október hafi haft víðtæk áhrif á allt hagkerfið. Mörg heimili og fyrirtæki hafi tekið lán í erlendri mynt og greiðslubyrðin þyngst í kjölfarið. Til viðbótar hafi eignaverð lækkað og atvinnuleysi aukist.



















