Skuldir ríkissjóðs aukast meira
Moody's telur að skuldir ríkissjóðs muni aukast verulega næstu tvö árin. Skuldirnar muni fara úr að vera 28% af landsframleiðslu í fyrra í yfir 150% árin 2009 og 2010. Moody's gerir því ráð fyrir að skuldirnar verði mun meiri en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði í sinni úttekt. Þar var þetta hlutfall sagt verða um 108%.
Samdráttur í efnahagslífi þjóðarinnar munu hafa víðtæk áhrif á afkomu ríkissjóðs næstu árin að mati Kenneth Orchard greinanda hjá Moody's. Á meðan útgjöld aukast vegna tekjutilfærslna, velferðarmála og skulda dragast tekjurnar saman.
Þetta verður samt ekki óyfirstíganlegt að mati Moody's. Stór hluti skuldanna fari í að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans og fjármagna nýju bankana, sem verða seldir á endanum samkvæmt matsfyrirtækinu. Einnig lækki skuldirnar þegar eignir bankanna verða seldir til að greiða fyrir innlánstryggingar í Bretlandi og Hollandi.
Í Morgunblaðinu á mánudaginn kom fram að halli á ríkissjóðs til ársloka 2011 verður nærri 470 milljörðum miðað við
spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þar af er gert ráð fyrir því að halli
ríkissjóðs á næsta ári nemi um 200 milljörðum króna. Fram hefur komið
að fjármagna eigi hallareksturinn með útgáfu skuldabréfa innanlands.



















