Viðskipti
| mbl
| 5.12.2008
| 17:01
Atorka hækkaði mest
Heildarvelta með hlutabréf var 335,6 milljónir króna í Kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,29% og endaði í 651,9 stigum. Bréf í Atorku hækkuðu mest, eða um 27,7%, en sáralítil viðskipti voru samt með bréf í félaginu, veltan var 590.000 kr. Bréf í Bakkavör hækkuðu um rúm 11% í 6 milljón króna veltu. Bréf Össurar voru þau einu sem lækkuðu, fóru niður um 0,84% í 1,6 milljóna króna veltu. Heildarvelta með skuldabréf var 19,9 milljarðar króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















