Landsbanki Íslands hf. fær greiðslustöðvun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Landsbanka Íslands hf. heimild til greiðslustöðvunar.
Í tilkynningu frá skilanefnd Landsbanka Íslands hf. segir að nauðsynlegt hafi verið að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veiti bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans.
Greiðslustöðvunin mun einnig veita Landsbanka Íslands hf. svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi.
Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.
Kristinn Bjarnason, hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður á greiðslustöðvunartímabilinu. Hann mun starfa með skilanefnd bankans, en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hans eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.
Eignir Landsbankans í Bretlandi, sem voru frystar af breska fjármálaráðuneytinu í byrjun október, eru það ennþá. Bretar stjórna því áfram þessum eignum og hefur greiðslustöðvun Landsbanka Íslands hf. engin áhrif þar á.
Gamli Glitnir og gamli Kaupþingsbanki fengu heimild til greiðslustöðvunar 24. nóvember og gildir heimildin til 13. febrúar 2009.
Greiðslustöðvun Landsbanka Íslands hf. nær ekki til Nýja Landsbankans, NIB en hann tók við starfsemi, Landsbankans á Íslandi, 9. október 2008.



















