Niðurstaðan kemur Birnu ekki á óvart
eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til annars en að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis, og félag hennar Melkorka ehf. hafi verið í góðri trú við kaup á hlutabréfum í Glitni banka á síðasta ári. Vanefndir á kaupum á hlutabréfunum stafi af ástæðum sem séu henni óviðkomandi. Er því að mati FME ekki ástæða til aðgerða af hálfu eftirlitsins gagnvart Birnu vegna þessa máls. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu í gær.
Birna segist ánægð með að niðurstaðan í málinu skuli vera afdráttarlaus og að því sé nú lokið. „Sjálf niðurstaðan kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart,“ segir Birna. „Þetta hefur vissulega verið erfitt mál fyrir mig persónulega og fyrir starfsfólk bankans líka. En nú er það að baki og við getum einbeitt okkur að því að byggja upp nýjan og öflugan banka.“
Forsaga málsins er sú að í marsmánuði á síðasta ári barst Kauphöllinni tilkynning um að Birna hefði keypt sjö milljón hluti í Glitni á genginu 26,4, eða fyrir samtals um 185 milljónir króna, í gegnum einkahlutafélag sitt Melkorku. Það kom hins vegar ekki í ljós fyrr en á hluthafafundi í Glitni hinn 20. febrúar á þessu ári að eignarhlutur Birnu var hvergi á skrá. Kaupin höfðu ekki gengið í gegn. Þegar Glitnir fór svo í þrot í byrjun október síðastliðins hafði Birna því ekki tapað hlutabréfunum, eða þeim fjármunum sem hún hefði þurft að greiða fyrir þau eins og aðrir hluthafar gerðu, þar sem hún var ekki skráður eigandi þeirra.



















