Eftirlit beggja landa vissu af vexti Icesave í Hollandi
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Fjármálaeftirlitin á Íslandi og í Hollandi voru sér bæði meðvitandi um þann hraða vöxt sem var á innlánum á Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fengu hollensk yfirvöld daglegar upplýsingar um heildarstöðu Icesave-reikninganna og öll bréfaskrif Landsbankans við hollenska eftirlitið voru afrituð fyrir hið íslenska fjármálaeftirlit (FME).
Morgunblaðið sendi fyrirspurn til FME þar sem spurt var í sjö liðum um samskipti eftirlitsins við hollenska seðlabankann, en þarlent fjármálaeftirlit heyrir undir hann. Svar FME var eftirfarandi: „FME hefur verið í góðu sambandi við hollenska seðlabankann á þessu ári varðandi starfsemi íslensku bankanna en getur því miður ekki tjáð sig um það frekar þar sem samskipti eftirlitsaðila eru trúnaðarmál.“
Fengu rangar upplýsingar
Skömmu eftir fall bankanna hótaði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, að draga íslensk stjórnvöld fyrir dómstóla. „Ef í ljós kemur að rangar upplýsingar hafi verið veittar er ljóst að framundan eru málaferli við íslensk stjórnvöld,“ var haft eftir Bos í tímaritinu Elsevier í sömu viku og Landsbankinn féll.
Hinn 11. október var síðan tilkynnt að samkomulag hefði náðst á milli hollenskra og íslenskra stjórnvalda um lausn á málum hollenskra innstæðueigenda. Árni Mathiesen tilkynnti um samkomulagið fyrir Íslands hönd en Wouter Bos fyrir Holland.
Heimildir Morgunblaðsins herma að samkomulagið hafið falið í sér að hollensk stjórnvöld myndu lána Íslandi 1,1 milljarð evra til að geta mætt þeim skuldbindingum sem skapast hefðu gagnvart hollenskum innstæðueigendum. Síðar kom í ljós að ekki var um formlegt samkomulag að ræða heldur viljayfirlýsingu. Því liggur enn ekki fyrir hver beinn kostnaður íslenska ríkisins vegna Icesave í Hollandi verður.
Þremur dögum eftir að samkomulagið var gert kom Bos síðan fram í hollenska ríkissjónvarpinu og sagði að íslensk fjármálayfirvöld hefðu talið hollenskum stjórnvöldum trú um það á fundum sínum í águst að íslensku bankarnir væru stöðugir og að þeir væru ekki að falla.



















