Fæst félög tengd Fons skila ársreikningum
Samkvæmt lögum eiga skil á ársreikningi að eiga sér stað eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.
Fons hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2007 en skilaði reikningi fyrir árin 2004, 2005 og 2006 í júní síðastliðnum eftir umfjöllun 24 stunda um slök skil hjá félaginu. Í ársreikningi Fons fyrir árið 2006 stendur orðrétt að starfsmenn Deloitte, sem árita reikninginn, séu ekki kjörnir endurskoðendur dótturfélaga Fons og hafi því ekki endurskoðað ársreikninga þeirra en „áhrif dótturfélaganna hafa verulega áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um endanlega afkomu og eiginfjárstöðu erlendra dótturfélaga á árinu og eru því áhrif af afkomu þeirra færð samkvæmt áætlun í ársreikning félagsins. Þar sem þau atriði sem getið er í málsgreininni hér að framan hafa verulega þýðingu, getum við ekki látið í ljós álit á ársreikningnum.“
Eignarhaldsfélagið Fengur hefur ekki skilað ársreikningum fyrir árin 2005, 2006 og 2007. NTH, sem átti meðal annars danska flugfélagið Sterling áður en að það fór í þrot fyrir nokkrum vikum, skilaði ársreikningi fyrir árið 2006 en hefur ekki skilað fyrir árið 2007. NTH á einnig flugfélagið Iceland Express sem á síðan ferðaskrifstofuna Express-ferðir. Hvorugt þeirra hefur skilað ársreikningum fyrir árin 2005, 2006 né 2007.



















