Viðskipti
| mbl
| 12.12.2008
| 9:35
Hollendingar byrjaðir að fá greitt af Icesave reikningum
Hollenski seðlabankinn byrjaði í gær að greiða út sparifjáreigendum sem áttu fé inni á Icesave-reikningum Landsbankans. Alls hafa um eitt hundrað þúsund sparifjáreigendur gert kröfu um að fá greitt út sparifé sitt en talið er að um 140 þúsund Hollendingar hafi átt inni á Icesave-reikningum, samkvæmt frétt hollenska dagblaðsins Financieele Dagblad.
Sparifjáreigendur geta fengið allt að 100 þúsund evrur upp í kröfur sínar. Þar af greiðir íslenska ríkið rúmar 20 þúsund evrur en íslensk stjórnvöld hafa fengið lán hjá hollenska ríkinu upp á 1,3 milljarða evra vegna þess. Um 20 þúsund evrur eru síðan endurfjármagnaðar hjá hollenskum bönkum en afgangurinn er greiddur af ríkissjóði Hollands til þess að mæta 100 þúsund evra markinu.
Í dag munu fulltrúar 469 Hollendinga sem áttu yfir 100 þúsund evrur hver inni á Icesave-reikningum Landsbankans hitta forsvarsmenn Landsbankans á fundi á Íslandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















