Hráolíuverð lækkar á ný
Verð á hráolíu lækkaði umtalsvert í morgun í Asíu á sama tíma og verð á hlutabréfum lækkaði mikið í álfunni þrátt fyrir að fjárfestar treysti því að fyrirhugaður samdráttur í framleiðslu OPEC ríkjanna muni styðja við verð á olíu.
Verð á hráolíu til afhendingar í janúar lækkaði um 2,41 dal tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í morgun og er 45,57 dalir. Í gær hækkaði hráolíuverð um 4,46 dali tunnan eða 10% í 47,98 dali tunnan á NYMEX markaðnum í New York.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 1,38 dali tunnan í morgun og er 46,01 dalur.
Verð á hráolíu hefur lækkað um 70% frá því það fór hæst í 147,27 dali tunnan í júlímánuði. Fór það lægst í 40,50 dali tunnan í síðustu viku og telja miðlarar á olíumarkaði að það hafi náð lágmarki og fari ekki neðar.



















