Viðskipti
| mbl
| 12.12.2008
| 17:18
Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega
Kauphöll Íslands. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni í dag var 321 miljón króna. Mbl.is / Kristinn Ingvarsson
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hækkaði lítillega eftir viðskipti dagsins, eða um 1,2% og lokagildi hennar var 660 stig. Bréf í Bakkavör hækkuðu mest, eða um 8,01% í viðskiptum sem námu 21,3 milljónum króna. Hlutabréf í Alfesca hækkuðu um 5,25% í viðskiptum sem námu þó aðeins 135.000 kr. Marel hækkaði um 4,6% og Össur um 4,1%. Eina félagið sem lækkaði var Icelandair Group, en bréf félagsins lækkuðu um 2,82% í viðskiptum sem námu rúmlega 991.250 kr.
Heildarvelta með hlutabréf var 321 milljón króna og heildarvelta með skuldabréf 10,6 milljarðar króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















