Fyrsta tap Goldman Sacks frá skráningu á markað
Tap bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs nam 2,12 milljörðum Bandaríkjadala eða 4,97 dölum á hlut á þriðja fjórðungi rekstrarársins sem lauk þann 28. nóvember sl. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans 3,2 milljörðum dala eða 7,01 dal á hlut. Er þetta í fyrsta skipti frá því Goldman Sachs bankinn var skráður á markað fyrir níu árum síðan að hann skilar tapi.
Sérfræðingar sem Reuters fréttastofan leitaði til höfðu spáð því að tap bankans næmi 3,73 dölum á hlut í ársfjórðungnum. Fjárfestar virtust hins vegar ánægðir með afkomu bankans því hlutabréf Goldman Sachs hafa hækkað um 7,75% í Kauphöllinni í New York í dag eða um 5,15 dali á hlut. Síðustu viðskipti með bankann voru á genginu 71,61.
Tekjur af fjárfestingabankastarfsemi drógust saman um 31% í fjórðungnum. Alls var 2.500 manns sagt upp hjá bankanum á þriðja ársfjórðungi sem svarar til um 8% af heildarfjölda starfsmanna. Auk þess sem verulega var dregið úr kostnaði.
Tapið nú er það fyrsta hjá Goldman frá því á fjórða ársfjórðungi 1998 er vogunarsjóðir og Asíukreppan léku bankann grátt. Goldman fór á markað árið 1999 og hefur aldrei skilað tapi eftir það fyrr en nú.



















