Vöruðu við íslensku bönkunum en enginn las póstinn
Sveitarstjórn Kent á Englandi setti þrjár milljónir punda inn á reikning hjá Heritable bankanum, dótturfélagi Landsbanka Íslands, degi eftir að verðbréfamiðlari sveitarfélagsins varaði við bankanum í tölvupósti. Sveitarstjórnin hafði hins vegar ekki lesið tölvupóstinn.
Þetta kemur fram í skýrslu PriceWaterhouseCoopers, samkvæmt frétt Kent Online.
Í skýrslunni er farið yfir þær ákvarðanir sveitarfélagsins að fjárfesta fyrir um 50 milljónir punda í íslensku bönkunum þremur. Þar kemur fram að ef einhver hefði lesið tölvupóstinn þá hefði væntanlega ekkert orðið af færslunni inn á innlánsreikning hjá Heritable bankanum. Það er hins vegar tekið fram að yfirmenn sveitarfélagsins hafi átt fund með verðbréfafyrirtækinu Butler, sem ráðlagði Kent varðandi fjárfestingar, þremur dögum áður og þar hafi ekkert komið fram sem benti til þess hver staða íslensku bankanna væri.
Frétt Kent Online í heild


















