Viðskipti
| AP
| 17.12.2008
| 8:19
Hækkun í Asíu
Helstu hlutabréfavísitölur í Asíu hækkuðu í dag í kjölfar þess að bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað í gær að lækka stýrivexti í 0-0,25%. Hafa þeir aldrei verið lægri. Hækkunin í Asíu er þó mun minni heldur en á Wall Street í gærkvöldi. Enda óttast fjárfestar að samdrátturinn verði meiri en hingað til hefur verið talið. Jafnframt lækkaði gengi Bandaríkjadals sem hefur slæm áhrif á útflutningstekjur asískra fyrirtækja.
Stýrivaxtalækkunin var mun meiri heldur en sérfræðingar höfðu spáð en flestir höfðu gert ráð fyrir því að þeir yrðu lækkaðir í 0,5%. Seðlabanki Hong Kong lækkaði stýrivexti sína í morgun um eitt prósent og eru þeir nú 0,5%. Bankinn fylgir yfirleitt á eftir bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna hvað varðar breytingar á stýrivöxtum enda er Hong Kong dalurinn tengdur við Bandaríkjadal.
Í Tókýó hækkaði Nikkei vísitalan um 0,5% og í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 1,5%. Í Suður-Kóreu hækkaði Kospi vísitalan um 0,7% og hlutabréfavísitölur hækkuðu einnig í Kína, Singapúr, Taílandi og Ástralíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















