Ryanair þarf ekki að endurgreiða belgíska ríkinu
Afgreiðsla Ryanair á Charleroi flugvelli YVES HERMAN
Lággjaldaflugfélagið Ryanair þarf ekki að endurgreiða belgíska ríkinu fjárstuðning sem félagið fékk upp á 4,5 milljónir evra. Þetta er niðurstaða áfrýjunardómsstóls Evrópusambandsins en þar kemur fram að samkeppnisyfirvöld hafi gert mistök þegar þau kröfðust þess að Ryanair endurgreiddi fjárhæðina.
Um er að ræða styrk sem Ryanair fékk vegna Charleroi flugvallar í nágrenni Brussel. En belgísk stjórnvöld ákváðu að greiða þeim styrk svo félagið myndi nýta völlinn fyrir áætlunarflug.
Í febrúar 2004 gerðu evrópsk samkeppnisyfirvöld athugasemdir við samning Ryanair við belgísk stjórnvöld og töldu að samningurinn vegna Charleroi væri ólöglegur og fyrirskipuðu Ryanair að gera breytingar á samningnum.



















