Viðskipti
| Morgunblaðið
| 18.12.2008
| 7:30
Vilja leysa erlenda fjárfesta út í skömmtum
Vilji er til þess innan Seðlabankans að semja við erlenda fjárfesta um að þeir fái að skipta krónum sem þeir eiga út í smáum skrefum.
Viðræður hafa verið í gangi til að finna lausn á málinu. Bæði þarf að semja um gengi í viðskiptunum og tryggja að útflæði gjaldeyris ógni ekki handstýrðum stöðugleika krónunnar á gjaldeyrismarkaði.
Óvissa er um hversu háar upphæðir um er að ræða. Sérfræðingar giska á 200 til 600 milljarða króna.
Útlendingarnir læstust inni í stöðum sínum þegar bankarnir féllu og gjaldeyrismarkaðurinn lokaðist. Reiðuféð er ávaxtað á meðan með kaupum á ríkisskuldabréfum, innstæðubréfum Seðlabankans og innlánum í bönkum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















