Ekki stendur til að afskrifa lán Milestone
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
Flókin endurskipulagning á fjárhagslegri uppbyggingu Milestone er á lokastigi. Guðmundur Ólason, forstjóri félagsins, segir ótímabært að úttala sig um stöðu mála þar sem ekki sé enn búið að klára samninga við alla kröfuhafa. Markmiðið sé að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækja félagsins, sem að stærstum hluta séu háð eftirlitsskyldu trygginga- og fjármálafyrirtækja. Allar eignir séu lágt verðmetnar í dag í kjölfar alþjóðlegs hruns á mörkuðum. Því fari hagsmunir félagsins og kröfuhafa saman ef beðið er með sölu eigna.
Guðmundur segir að ekki standi til að afskrifa nein lán heldur skapa rými til að ná verðmætum upp í kröfurnar. Hann er bjartsýnn á að það takist enda standi grunnrekstur félaga innan samstæðunnar almennt vel.
Skuldar yfir 100 milljarða
Skuldir Milestone nálgast nú að vera 115 milljarðar króna á meðan verðmæti eigna er um 60 milljarðar króna samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Stór hluti eigna og skulda er í erlendri mynt.Í samningaviðræðum við lánveitendur er lagt til að þeir breyti 30% af kröfu sinni í lán. Hluti af láninu verður víkjandi. Þessi aðgerð styrkir efnahag félagsins. Fyrir afganginn af kröfunni, eða 70%, fær lánveitandi rétt til að eignast hlutabréf í Milestone. Glitnir er stærsti kröfuhafinn.
Tæknilega er hægt að segja að sá hluti lánsins sé afskrifaður. Ef eignir félagsins hækka hins vegar geta kröfuhafar nýtt áunninn rétt til kaupa á hlutabréfum. Þannig geta þeir fengið andvirði lánsins greitt aftur í ákveðnum hlutföllum við verðmætaaukningu eigna.
Sem dæmi eru eignir Milestone nú metnar á 60 milljarða króna. Í byrjun þessa árs voru eignirnar metnar á yfir 160 milljarða króna. Endurheimtuhlutfall kröfuhafa nálgast það að vera 100% ef eignirnar eru metnar á 130 milljarða króna samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Núverandi eigendur þynnast út
Núverandi eigendur Milestone, bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, munu einnig njóta þess ef vel gengur. Þeir munu fá 13% af hlutafé félagsins og eiga endurkauparétt á 27% til viðbótar af Glitni. Samanlagt geta þeir eignast 40% af útgefnu hlutafé.Hins vegar fá lánveitendur forgang til allra útgreiðslna úr félaginu þangað til skuldin við þá er að fullu bætt. Bræðurnir geta heldur ekki innleyst neinn hagnað af hlutabréfaeign sinni fyrr en búið er að uppfylla skilmála við kröfuhafa.
Með þessum aðgerðum er talið að gætt sé að hagsmunum kröfuhafa, 650 starfsmanna og tveggja milljóna viðskiptavina félaga sem starfa undir hatti Milestone. Komið er í veg fyrir nauðungarsölu á eignum og kröfur um styrkan efnahag eignarhaldsfélaga fjármálafyrirtækja uppfylltar.
Fjármálaeftirlitið í Svíþjóð hefur ekki sett sig upp á móti þessu fyrirkomulagi.



















